Félag nýrnasjúkra


Go to content

Sumarferð Norðanmanna

Þetta skeyti kom frá Magnúsi og Sigurbjörgu eftir að haldinn hafði verið fundur Tengslahóps nýrnasjúkra og aðstandenda þeirra á Húsavík laugardaginn 14. júní 2008


SUMARFERÐ NORÐANMANNA

Það var mjög ánægjulegur fundur haldin á Húsavík í dag. Heimamenn sem voru á fundinum þökkuðu afskaplega vel fyrir að ákveðið var að þessi fundur væri haldin hjá þeim og báðu um að framhald yrði á. Bæði að við kæmum aftur og eins að fá tækifæri til að koma á fund til okkar. Það þýðir að við verðum að finna aðra tímasetningu á fundum fyrir næsta vetur. Að hafa fund kl. 20:00 er of seint fyrir skilunarsjúklinga fyrir austan.

Við tókum tíma í upphafi til að segja frá félaginu, Tengslahópnum og kynna heimasíðuna. Fólk virtist ekki hafa áttað sig á að það væri starfandi félag eða heimasíða. Það vekur upp spurningar hvort kynningabæklingarnir séu ekki á áberandi stöðum á Skilun, nýrnadeild eða læknastofum. Ég veit að einn þessara einstaklinga er nýkomin úr aðgerð þar sem slangan var sett og hann undirbúin fyrir kviðskilun.

Við fórum 8 frá Akureyri og á heimleiðinni heimsóttum við skjólstæðinga Tengslahópsins í sumarbústað þeirra. Þetta eru hjón sem hafa sótt stuðningsfundina í vetur. Það var mjög gaman og ætli við segjum bara ekki að þetta hafi verið sumarferðin okkar hér fyrir norðan. Allavega var glampandi sólskin og frábært veður.

Góða skemmtun í ykkar sumarferð á morgun.

Kveðjur
Magnús og Sigurbjörg



Til baka í fréttir


Back to content | Back to main menu