Félag nýrnasjúkra


Go to content

Tillaga

Tillaga frá stjórn Félags nýrnasjúkra lögð fram á aðalfundi Öryrkjabandalags Íslands 4. október 2008.


Stjórn Félags nýrnasjúkra beinir því til aðalstjórnar ÖBÍ og Brynju – hússjóðs ÖBÍ að séð verði til þess að bandalagið/hússjóðurinn hafi íbúðir á sínum vegum til skammtímaleigu fyrir fólk sem býr úti á landi en þarf að dvelja um lengri eða skemmri tíma í Reykjavík vegna læknismeðferðar.


Greinargerð

Nokkur stór líknarfélög eiga íbúðir sem þau leigja félagsmönnum sínum utan af landi þegar þeir þurfa að leita sér lækninga á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Til þess hefur Félag nýrnasjúkra ekki bolmagn. Nýrnasjúkir búa hins vegar um allt land en það er einungis hér í Reykjavík sem rekin er nýrnadeild og skilunardeild.

Engin meðferð er til sem læknar skemmd og óstarfhæf nýru. Völ er á tvenns konar meðferð, ígræðslu nýra eða blóðhreinsun, svokallaðri skilun. Til eru tvær tegundir af skilun, blóðskilun og kviðskilun.

Til þess að undirbúa fólk, framkvæma aðgerðir og þjálfa fólk fyrir umræddar skilunarmeðferðir þarf það iðulega að koma daglega á sjúkrahúsið yfir lengri einhvern tíma.

Ígræðsla nýra er besta meðferðin við lokastigsnýrnabilun. Miklar rannsóknir þurfa að fara fram á bæði nýraþega og nýragjafa sem þurfa þá að mæta dag eftir dag á sjúkrahúsið. Einnig þarf sá sem fær ígrætt nýra að mæta í rannsókn 2-3 skipti í viku fyrstu vikurnar eftir aðgerð. Eftir að ígræðsla nýra frá lifandi gjafa hófst hér á landi hefur þeim sem gangast undir slíka aðgerð fjölgað mjög.

Margir nýrnasjúkir eiga þann kost einan að flytjast til Reykjavíkur þegar þeir þurfa á meðferð við lokastigsnýrnabilun að halda. Slíkt getur gerst á fyrirvaralaust og þá er nauðsynlegt að eiga búsetuúrræði í skamman tíma á meðan verið er að finna sitt framtíðarheimili.

Langveikir nýrnasjúklingar sem enn eru ekki komnir í skilunarmeðferð geta þurft að dvelja í Reykjavík tímabundið á meðan á rannsóknum stendur.

Við í stjórn Félags nýrnasjúkra verðum mjög vör við húsnæðisvandræði fólks utan af landi sem leita þarf til Landspítala háskólasjúkrahúss vegna ástæðna sem greint er frá hér að framan. Við teljum það knýjandi að Öryrkjabandalag Íslands/Brynja hússjóður ÖBÍ hafi íbúðir til skammtímaleigu fyrir þá sem þurfa að dvelja tímabundið í Reykjavík á meðan þeir eru í rannsóknum eða þjálfun og eiga í engin hús að venda.



f.h. stjórnar Félags nýrnasjúkra
Jórunn Sörensen formaður


Back to content | Back to main menu