Main menu:
Áfram var ekið niður með Þjórsá og þaðan í vestur fram hjá Baugstaðabúinu og Knarrarósi. Ekið var í gegnum bæina Stokkseyri og Eyrarbakka þar sem við fræddumst um merk hús – bæði stór og smá. Minnsti mannabústaðurinn var Þuríðarbúð sem við skoðuðum. Síðan lá leiðin í Friðlandið í Flóa. Það vakti athygli og aðdáun okkar hve Fuglaverndarfélagið hefur unnið gott starf með því að endurheimta votlendi og koma upp friðlandi fyrir fugla. Það er strax farið að skila sér í stórauknum fjölda fuglategunda og fjölda innan tegunda. Ekki man ég hve mörg lómapör Jóhann Óli sagði að verptu núna í Friðlandinu. Þarna er líka búið að koma upp fuglaskoðunarhúsi - afbragðsaðstöðu til þess að skoða fugla og sáum við lómapar á tjörn sem var lítið hrifið þegar álft settist á vatnið hjá þeim.
Nú vorum við orðin bæði svöng og kaffiþyrst og hlaðborðinu í Rauða húsinu á Eyrarbakka því tekið fagnandi. Þar sátum við í rólegheitum drjúga stund og var stöðugt bætt á veisluföngin eftir því sem á þau gekk. Hjördís Guðmundsdóttir bauð okkur að skoða kirkjuna sem við gerðum um leið og við fórum aftur í rútuna og ókum heim á leið. Ánægð eftir skemmtilegt og fróðlegt síðdegi kvöddumst með virktum í ferðalok. Það var Björn Jónsson leiðsögumaður sem skipulagði ferðina.
Sjá myndir